Manchester United tryggði sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta með ótrúlegum sigri á Lyon, 5:4, á heimavelli.
Lyon var með 4:2 forskot í framlengingu en United skoraði þrjú mörk á lokakaflanum og tryggði sér ótrúlegan sigur.
Einhverjir stuðningsmenn United sjá nú eftir því að hafa yfirgefið völlinn í stöðunni 4:2 og Joshua Zirkzee leikmaður liðsins virtist skjóta létt á þá í myndbandi sem hann birti á Instagram.
Á myndbandinu má heyra mikil læti á Old Trafford og eftirfarandi texta: „Þið sem fóruð snemma heim, hlustið á þetta.“
🚨 - Joshua Zirkzee on Instagram:
— UF (@UtdFaithfuls) April 17, 2025
"To all the fans who left when we were down, have a listen to this.'
GOOSEBUMPS. 😍❤️pic.twitter.com/NpGlRDvTo7