Lést sex árum eftir að skórnir fóru á hilluna

Joe Tompson í leik með Rochdale.
Joe Tompson í leik með Rochdale. AFP

Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi, Joe Thompson, lést í gær eftir baráttu við krabbamein 36 ára að aldri.

Thompson lagði skóna á hilluna árið 2019 þá 29 ára gamall. Hann var greindur með krabbamein í þriðja skiptið á síðasta ári.

Thompson hóf ferilinn með Rochdale á Englandi árið 2006 og lauk honum þar. Einnig lék hann með Tranmere, Bury, Wrexham, Southport og Carlisle.

Greindist fyrst árið 2013

Í yfirlýsingu frá Rochdale segir að klúbburinn sé eyðilagður vegna fregna af fráfalli Thompson.

Hann greindist fyrst árið 2013 með Hodgkin eitlakrabbamein en á þeim tíma lék hann fyrir Tranmere. Hann var kominn aftur til Rochdale árið 2016 þegar hann greindist í annað sinn. Hann tilkynnti um að vera laus við krabbann árið 2017.

Thompson var í akademíu Manchester United frá níu ára aldri áður en hann gekk til liðs við Rochdale árið 2005. Klúbburinn segir í yfirlýsingu sinni að fyrst hafi Thompson verið fyrir klúbbnum efnilegur fótboltamaður en snemma hafi klúbburinn farið að dá hans hlýja persónuleika.

„Hann mætti öllum bardögum af krafti, bæði innan og utan vallar. Ferðalag hans verður öllum hvatning sem hafa verið snertir af sögu hans.“

Thompson lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn.

Leikmenn Rochdale munu leika með sorgarbönd í leik sínum gegn Altrincham í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert