City gekk frá Everton í lokin – sex mörk í London

Nico O'Reilly fagnar eftir að hann kom Manchester City yfir.
Nico O'Reilly fagnar eftir að hann kom Manchester City yfir. AFP/Paul Ellis

Manchester City gerði góða ferð til Liverpool og sigraði Everton, 2:0, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Var staðan markalaus fram að 84. mínútu þegar Nico O’Reilly kom City yfir eftir sendingu frá Matheus Nunes. Varamaðurinn Mateo Kovacic innsiglaði sigur City í uppbótartíma.

City er í fjórða sæti með 58 stig, aðeins stigi á eftir Newcastle í þriðja. Everton er í 13. sæti með 38 stig.

Brentford og Brighton buðu upp á fjörlegan leik á heimavelli fyrrnefnda liðsins en lokatölur urðu 4:2, Brentford í vil. Hákon Rafn Valdimarsson var á bekknum hjá Brentford.

Liðsmenn West Ham voru súrir eftir að þeim mistókst að …
Liðsmenn West Ham voru súrir eftir að þeim mistókst að vinna botnliðið. AFP/Ben Stansall

Bryan Mbeumo kom Brentford yfir á 9. mínútu en Danny Welbeck minnkaði muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks og voru hálfleikstölur 1:1.

Mbeumo kom Brentford aftur yfir á 48. mínútu og tíu mínútum síðar skoraði Yoane Wissa eftir undirbúning hjá Mbeumo. Mótlætið fór illa í João Pedro hjá Brighton því hann fékk beint rautt spjald á 61. mínútu.

Þrátt fyrir það minnkaði Kaoru Mitoma muninn fyrir Brighton á 81. mínútu. Brentford átti hins vegar lokaorðið því Christian Nørgaard skoraði fjórða markið á fimmtu mínútu uppbótartímans og þar við sat.

West Ham og botnlið Southampton skildu jöfn á London-vellinum, heimavelli West Ham, 1:1. Jarrod Bowen kom West Ham yfir á 47. mínútu en Lesley Ugochukwu jafnaði í uppbótartíma.

Loks skildu Crystal Palace og Bournemouth jöfn á Selhurst Park, 0:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert