Manchester City gerði góða ferð til Liverpool og sigraði Everton, 2:0, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Var staðan markalaus fram að 84. mínútu þegar tvítugi Nico O’Reilly kom City yfir eftir sendingu frá Matheus Nunes. Varamaðurinn Mateo Kovacic innsiglaði sigur City í uppbótartíma.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.