Fékk beint rautt fyrir ljóta tæklingu (myndskeið)

Leif Davis í liði Ipswich fékk beint rautt spjald í fyrri hálfleik í tapi liðsins fyrir Arsenal, 4:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Portman Road í Ipswich í dag. 

Leandro Trossard og Gabriel Martinelli voru búnir að koma Arsenal í 2:0 fyrir tæklinguna en hún átti sér stað á 32. mínútu. Þá fór Davis aftan í Bukayo Saka, stjörnu Arsenal-liðsins. 

Svip­mynd­ir úr leikn­um má sjá í spil­ar­an­um hér fyr­ir ofan en mbl.is fær­ir ykk­ur efni úr enska bolt­an­um í sam­vinnu við Sím­ann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert