Kieran McKenna, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Ipswich, virðist hafa gefist upp í baráttunni um að halda liðinu í deild þeirra bestu.
Í leikskrá dagsins fyrir leik liðsins gegn Arsenal lætur hann hafa eftir sér að miðað við stöðuna í deildinni á þessum tímapunkti sé líklegast að liðið falli í ensku B-deildina.
„Að öllum líkindum munum við ekki ná markmiðum okkar í lok tímabilsins,“ er haft eftir McKenna.
Ipswich situr í 18. sæti 14 stigum á eftir Wolves, sem er í því 17. og með mun betri markatölu.
Leikur Ipswich og Arsenal á Portman Road hófst klukkan 13.
Fylgst er með gangi mála í beinni textalýsingu hér á mbl.is.