Talið er að Newcastle United vilji fá 120 milljónir punda fyrir sóknarmann sinn Alexander Isak en Svíinn hefur verið einn allra öflugasti sóknarmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu.
Meistarakandídatar Liverpool eru sagðir leiða kapphlaupið um leikmanninn og segir miðilinn GiveMeSport í umfjöllun sinni að verðmiðinn hræði enska stórliðið ekki frá, sem væri tilbúið að greiða hærri upphæð ef til þarf.
Newcastle er langríkasta félag Evrópu en vakið hefur athygli að engin óstjórnleg eða yfirgengileg eyðsla hefur verið á þeim bænum síðan fjárfestingarsjóður frá Sádí Arabíu keypti félagið.