Trent Alexander-Arnold er væntanlega á förum frá Liverpool til Real Madrid eftir tímabilið en hann hefur mikið verið orðaður við Real Madrid undanfarnar vikur og mánuði.
Alexander-Arnold skoraði sigurmark Liverpool gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni í gær og fagnaði vel og innilega með stuðningsmönnum í kjölfarið, sem einhverjir túlka sem kveðjustund.
Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og núverandi sparkspekingur hjá Sky, sagði eftir leik að Liverpool þurfi ekki að örvænta yfir að bakvörðurinn fari frá félaginu.
„Trent er stórkostlegur leikmaður en umræðan er eins og heimurinn sé að farast því hann er að fara. Hann hefur verið magnaður fyrir Liverpool en ég er viss um að liðið lifi þetta af. Betri leikmenn hafa yfirgefið félagið og því enn gengið vel,“ sagði Keane á Sky.