Trent Alexander-Arnold skoraði sigurmark Liverpool er liðið vann Leicester, 1:0, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Bakvörðurinn fagnaði vel og innilega, reif sig úr að ofan og hljóp til stuðningsmanna Liverpool sem ærðust úr kæti.
Alexander-Arnold verður samningslaus eftir nokkrar vikur og bendir allt til þess að hann sé á leiðinni til Real Madrid á Spáni. Þó eru ekki allir sannfærðir eftir leikinn í gær.
„Þú fagnar ekki svona ef þú ert á förum frá félagi,“ sagði fyrrverandi leikmaðurinn Clinton Morrison á Sky.
Ian Burchnall, fyrrverandi stjóri Wolves, er á öðru máli. „Þetta var tilfinningaríkt hjá honum. Eins og hann vildi kveðja með góðu augnabliki. Við sjáum til,“ sagði hann.