Jamie Carragher, sparkspekingi og fyrrverandi leikmanni Liverpool, finnst að Trent Alexander-Arnold eigi ekki að byrja leiki á meðan framtíð hans er óráðin.
Samningur Alexander-Arnolds rennur út eftir tímabilið og hefur enski bakvörðurinn verið mikið orðaður við spænska stórveldið Real Madrid.
„Trent á ekki að byrja leiki ef hann hefur ekki tjáð stjóranum tryggð sína fyrir næsta tímabil,“ sagði Carragher á Sky.
„Þetta snýst ekki um að kveðja Trent á almennilegan máta heldur frekar þurfum við að meta hvort Conor Bradley sé rétti maðurinn fyrir næsta tímabil, með því að spila honum í hverri viku,“ bætti Carragher við.
Alexander-Arnold skoraði sigurmark Liverpool gegn Leicester í gær og fagnaði vel og innilega og reif sig úr að ofan. Fagnið vakti mikla athygli hjá stuðningsmönnum Liverpool og hafa margir spurt sig hvort það væru einhver skilaboð á bak við það.