Leeds og Burnley upp í úrvalsdeildina

Josh Brownhill skoraði tvö.
Josh Brownhill skoraði tvö. AFP/Glyn Kirk

Leeds og Burnley leika í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á næsta tímabili. Varð þetta ljóst eftir að Burnley sigraði Sheffield United, 2:1, á heimavelli í B-deildinni í dag.

Úrslitin þýða að Leeds og Burnley eru örugg með tvö efstu sæti deildarinnar, þegar tvær umferðir eru eftir.

Eru liðin með 94 stig hvort, átta stigum á undan Sheffield-liðinu þegar aðeins sex stig eru eftir í pottinum.

Josh Brownhill skoraði bæði mörk Burnley, það fyrra á 28. mínútu og það seinna úr víti á 44. mínútu. Tom Cannon jafnaði þess á milli í 1:1 á 37. mínútu.

Leeds er á sínu öðru tímabili í röð í B-deildinni eftir tap í úrslitum umspilsins á Wembley á síðustu leiktíð. Burnley féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð en fer beint aftur upp.

Joel Piroe og félagar í Leeds eru einnig komnir upp.
Joel Piroe og félagar í Leeds eru einnig komnir upp. Ljósmynd/Leeds United
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert