Liverpool er svo gott sem búið að tryggja sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta eftir 1:0-útisigur á Leicester í gær. Þarf liðið aðeins einn sigur í viðbót í fimm síðustu umferðunum.
Liverpool-liðið getur formlega orðið meistari strax á miðvikudag en þá mætast Arsenal og Crystal Palace í Lundúnaslag.
Fari svo að Crystal Palace vinni óvæntan útisigur getur Arsenal ekki lengur náð Liverpool á toppnum. Ef Arsenal misstígur sig ekki fær Liverpool tækifæri til að tryggja titilinn á heimavelli gegn Tottenham næstkomandi sunnudag.