Þjálfari Dallas orðinn einn af eigendum Everton

Jason Kidd er þjálfari Dallas Mavericks.
Jason Kidd er þjálfari Dallas Mavericks. AFP/Sam Hodde

Jason Kidd, þjálfari bandaríska NBA-körfuboltaliðsins Dallas Mavericks, er orðinn einn af eigendum enska knattspyrnufélagsins Everton.

Kidd er fyrrum leikmaður í NBA-deildinni og nú partur af Friedkin-hópnum sem keypti Everton undir lok 2024.

Sem leikmaður var hann tíu sinnum valinn í stjörnulið deildarinnar, vann deildina með Dallas árið 2011 og vann tvö gull á Ólympíuleikunum, fyrst árið 2000 og svo 2008.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert