Glæsileg afgreiðsla á Brúnni (myndskeið)

Nicolas Jackson var hetja Chelsea er liðið sigraði Everton, 1:0, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Jackson skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik með hnitmiðuðu skoti utan teigs eftir að Chelsea vann boltann á miðsvæðinu.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert