Guðlaugur nánast fallinn og Stefán gæti farið sömu leið

Guðlaugur Victor Pálsson og Stefán Teitur Þórðarson gætu fallið saman …
Guðlaugur Victor Pálsson og Stefán Teitur Þórðarson gætu fallið saman úr ensku B-deildinni. Ljósmynd/Alex Nicodim

Plymouth er svo gott sem fallið úr ensku B-deildinni í fótbolta, þrátt fyrir 2:1-útisigur á Preston í Íslendingaslag í dag.

Þar sem Luton og Derby unnu leiki sína í dag er Plymouth þremur stigum frá öruggu sæti þegar ein umferð er eftir. Plymouth er með 36 mörk í mínus og á svo gott sem enga möguleika á að fara upp úr fallsæti vegna þessa.

Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn með Plymouth. Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 69 mínúturnar með Preston, sem er aðeins einu stigi fyrir ofan Hull og síðasta fallsætinu fyrir lokaumferðina.

Cardiff er fallið eftir jafntefli við West Brom á heimavelli, 0:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert