Chelsea vann mikilvægan sigur á Everton, 1:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Stamford Bridge í London í dag.
Eftir leikinn er Chelsea með 60 stig í fjórða sæti deildarinnar og í mikilli Meistaradeildarbaráttu. Nottingham Forest er með jafnmörg stig í fimmta sæti og Newcastle með stigi minna í sjötta en bæði lið eiga leik til góða.
Sigurmark Chelsea skoraði Nicolas Jackson á 27. mínútu leiksins eftir sendingu frá Enzo Fernández.