City tryggði sér sæti í bikarúrslitum

Liðsmenn Manchester City fagna í dag.
Liðsmenn Manchester City fagna í dag. AFP/Adrian Dennis

Manchester City tryggði sér í dag sæti í bikarúrslitum karla í fótbolta á Englandi með sigri á Nottingham Forest, 2:0, í seinni undanúrslitunum á Wembley.

Rico Lewis gerði fyrra markið strax á 2. mínútu og Josko Gvardiol gerði seinna markið á 51. mínútu.

City mætir Crystal Palace í úrslitum en Palace sigraði Aston Villa, 3:0, í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert