Liverpool er Englandsmeistari

Liverpool er enskur meistari karla í knattspyrnu í 20. skipti eftir að hafa sigrað Tottenham Hotspur í 34. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Anfield í dag, 5:1.

Liverpool er komið með 82 stig þegar fjórar umferðir eru eftir en Arsenal er með 67 stig í öðru sæti og getur ekki lengur náð Liverpool að stigum.

Þar með hefur Liverpool jafnað við erkifjendurna í Manchester United sem hafði unnið enska meistaratitilinn oftast allra, 20 sinnum, síðast árið 2013.

Leikmenn Liverpool hlýða á The Kop og aðra á Anfield …
Leikmenn Liverpool hlýða á The Kop og aðra á Anfield syngja "You'll Never Walk Alone" eftir leikinn. AFP/Paul Ellis

Gríðarleg stemning var á Anfield í dag eins og vænta mátti en aðeins sló á hana á 12. mínútu. Þá skoraði Dominic Solanke, fyrrverandi leikmaður Liverpool, glæsilegt skallamark eftir hornspyrnu James Maddisons frá hægri og Tottenham var óvænt komið yfir, 1:0.

Virgil van Dijk og Harvey Elliott baða knattspyrnustjórann Arne Slot …
Virgil van Dijk og Harvey Elliott baða knattspyrnustjórann Arne Slot í kampavíni. AFP/Paul Ellis

Það stóð þó ekki lengi. Á 16. mínútu slapp Dominik Szoboszlai inn í vítateiginn hægra megin og sendi fyrir á Luis Díaz sem skoraði, 1:1. Markið var reyndar dæmt af til að byrja með en í ljós kom að Szoboszlai var ekki rangstæður og markið gott og gilt.

Alisson Becker og Arne Slot fagna í leikslok.
Alisson Becker og Arne Slot fagna í leikslok. AFP/Paul Ellis

Og átta mínútum síðar var fjörið á Anfield orðið enn meira. Á 24. mínútu vann Ryan Gravenberch boltann af varnarmanni við vítateigslínuna og náði að ýta honum á Alexis Mac Allister sem skoraði með miklum þrumfleyg með vinstri fæti upp í hægra markhornið, 2:1.

Liverpool lét kné fylgja kviði og á 34. mínútu tók Mac Allister hornspyrnu frá hægri. Cody Gakpo náði boltanum og skaut úr miðjum vítateig í vinstra hornið, 3:1, og þannig var staðan í hálfleik.

Luis Diaz fagnar eftir að hafa jafnað fyrir Liverpool á …
Luis Diaz fagnar eftir að hafa jafnað fyrir Liverpool á 16. mínútu AFP/Paul Ellis

Gakpo hefði getað skorað fjórða mark Liverpool á 49. mínútu en hann skaut ekki í dauðafæri, einn gegn markverði, og sending til hliðar mistókst.

Mohamed Salah urðu hins vegar ekki á nein mistök á 63. mínútu þegar hann skoraði langþráð mark eftir nokkra þurrð undanfarið. Hröð sókn Liverpool, Szoboszlai renndi boltanum á Salah sem lék til vinstri inn í vítateiginn og skaut í hægra hornið niðri, 4:1.

Szoboszlai var allt í öllu í sóknarleik Liverpool í dag og var óheppinn að bæta ekki við fimmta markinu eftir sendingu frá Salah á 66. mínútu. Hann komst einn gegn Vicario markverði sem varði vel frá honum.

Luis Díaz og Alexis Mac Allister fagna eftir að Mac …
Luis Díaz og Alexis Mac Allister fagna eftir að Mac Allister kom Liverpool í 2:1 með glæsilegu skoti. AFP/Paul Ellis

Veislan hélt áfram á 69. mínútu þegar Destiny Udogie varð fyrir því óláni að senda boltann í eigið mark þegar Trent Alexander-Arnold sendi inn í markteiginn þar sem Salah beið í dauðafæri, 5:1.

Liverpool var með öll tök á gangi mála það sem eftir lifði leika og var nær því að bæta við mörkum en Tottenham að laga stöðuna.

Mohamed Salah tekur mynd af sjálfum sér með stuðningsmönnum Liverpool …
Mohamed Salah tekur mynd af sjálfum sér með stuðningsmönnum Liverpool eftir að hafa skorað fjórða markið í dag. AFP/Paul Ellis

Í leikslok braust síðan út gríðarlegur fögnuður og enska meistaratitlinum fagnað innilega á Anfield. "You'll Never Walk Alone" hljómaði tugþúsundraddað í uppbótartíma leiksins.

Liverpool 5:1 Tottenham opna loka
90. mín. Darwin Nunez kominn í dauðafæri einn gegn markverði en hann velur að renna til hliðar á Salah og sendingin er of föst. Salah nær að renna út á Elliott sem skýtur í varnarmann. Þarna átti sjötta markið að koma!
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert