Neville um Slot: Með því betra sem við höfum séð

Gary Neville, t.v., og Arne Slot stjóri karlaliðs Liverpool.
Gary Neville, t.v., og Arne Slot stjóri karlaliðs Liverpool. AFP/Samsett mynd

Gary Neville, sparkspekingur og fyrrverandi fyrirliði Manchester United, hrósaði Arne Slot, knattspyrnustjóra karlaliðs Liverpool, í hástert. 

Liverpool nægir stig í leik sínum gegn Tottenham í dag til að verða Englandsmeistari á fyrsta tímabili Slot með liðið. 

Neville, sem vinnur hjá SkySports, segir að tímabil Slot sé eitt það besta hjá stjóra í sögu ensku deildarinnar. 

„Yfir heilt tímabil er þetta eitt það besta sem við höfum séð hjá stjóra. Að koma inn og vinna titilinn þegar enginn spáði því er alveg magnað,“ sagði Neville meðal annars. 

Leikur Liverpool og Tottenham hefst klukkan 15.30 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert