Áfram líklegt að markvörðurinn yfirgefi Manchester

Ederson hefur varið mark Manchester City í átta ár.
Ederson hefur varið mark Manchester City í átta ár. AFP/Oli Scarff

Brasilíumaðurinn Ederson, markvörður enska knattspyrnuliðsins Manchester City, gæti vel farið frá félaginu í sumar. 

Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano segir frá en Ederson var orðaður frá City síðasta sumar en endaði á því að vera áfram. 

Félög í Sádi-Arabíu voru þá sögð hafa áhuga á honum og er það enn staðan samkvæmt Romano. 

Ederson gekk í raðir Manchester City sumarið 2017 og hefur síðan sex sinnum orðið Englandsmeistari og einu sinni Evrópumeistari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert