Eiður Smári: Þá var ég bara vinna fyrir sjónvarpið

Ítalinn Enzo Maresca, knattspyrnustjóri karlaliðs Chelsea, sat á undarlegum stað í sigri liðsins á Everton, 1:0, í ensku úrvalsdeildinni síðasta laugardag. 

Sigurinn var Chelsea mikilvægur en liðið er í fimmta sæti deildarinnar með 60 stig og í mikilli Meistaradeildarbaráttu.

Maresca var í leikbanni og sat á undarlegum stað í stúkunni þar sem hann virtist ekki sjá sérlega mikið af vellinum. 

Eiður Smári Guðjohnsen var ásamt Margréti Láru Viðarsdóttur gestur Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum sport en þau ræddu meðal annars um hvar Maresca sat. 

„Ég þekki þetta sæti og hef setið í því, en þá var ég bara að vinna fyrir sjónvarpið. Það er allt of mikil umferð þarna í kringum hann og enginn friður, þetta var mjög sérstök ákvörðun að sitja þarna,“ sagði Eiður meðal annars. 

Umræðu þeirra um leikinn má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert