Leikmenn Liverpool helltu kampavíni yfir stjórann Arne Slot eftir að hann söng um forvera sinn í starfi, Jürgen Klopp.
Liverpool tryggði sér Englandsmeistaratitil karla í knattspyrnu eftir sigur á Tottenham, 5:1, í gær og var mikil stemning eftir leik.
Slot var spurður út í forvera sinn Klopp sem söng eftirminnilega um hann eftir síðasta leik sinn sem stjóri Liverpool á síðustu leiktíð.
Slot gerði slíkt hið sama um Klopp en leikmenn liðsins helltu síðan kampavíni yfir hann stuttu síðar.
Myndskeiðið af fögnuðinum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.