Margrét Lára Viðarsdóttir hrósaði Bruno Fernandes, fyrirliða enska knattspyrnuliðsins Manchester United, í hástert eftir jafntefli liðsins gegn Bournmeouth, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í Bournemouth í gær.
Margrét Lára var gestur Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum Sport í gær ásamt Eiði Smára Guðjohnsen.
Þau fóru yfir leik Bournemouth og United sem hafnaði 1:1 en Daninn Rasmus Höjlund jafnaði metin fyrir United undir blálok leiks.
„Ég segi bara enn og aftur, hvar væri þetta United-lið án Bruno? Hann er algjörlega stórkostlegur og getur spilað frábærlega viku eftir viku þrátt fyrir að úrslitin séu ekki að detta.
Það verður að hrósa honum fyrir að halda haus. Þessar sendingar hans í leikjum, hvernig hann er að koma samherjum sínum í góðar stöður, það er unun að fylgjast með því,“ sagði Margrét Lára en umræðuna í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.