Leikmenn, þjálfarar og starfsmenn Liverpool sungu You'll Never Walk Alone ásamt stuðningsmönnum sínum eftir að hafa tryggt sér Englandsmeistaratitil karla í knattspyrnu á Anfield í gær.
Liverpool hefur átt frábært tímabil í deildinni og er búið að tryggja sér titilinn þó fjórar umferðir séu eftir.
You'll Never Walk Alone er stuðningsmannalag Liverpool, sem og nokkurra annarra liða, og er spilað fyrir hvern heimaleik.
Félagið spilaði lagið þó einnig eftir leik og fékk fyrirliðinn Virgil van Dijk Liverpool-teymið til að raða sér upp og syngja með stuðningsmönnum.
Myndskeiðið má sjá hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.