Skemmtilegt svar við stríðni Liverpool-mannsins

Harvey Elliott hellir kampavíni yfir stjórann Arne Slot.
Harvey Elliott hellir kampavíni yfir stjórann Arne Slot. AFP/Paul Ellis

Richarlison framherji Tottenham og Harvey Elliott miðjumaður Liverpool lentu saman í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Anfield í gær. 

Liverpool tryggði sér Englandsmeistaratitilinn með öruggum sigri en Elliott, sem var þá nýkominn inn á, reyndi að stríða Richarlison með því að klobba hann, þó að boltinn hafi ekki verið í leik. 

Richarlison, sem er þekktur fyrir að eiga í útistöðum við aðra leikmenn, var alls ekki ánægður og gekk að Elliott og ýtti í hann en Elliott svaraði í sömu mynt. 

Elliott gerði síðan merki með puttunum sem vísar í töluna 30. Ekki er alveg vitað af hverju en margir vilja meina að hann hafi verið að vitna í að það séu 30 ár síðan Everton vann bikar, en Richarlison spilaði lengi vel hjá liðinu og er dáður af stuðningsmönnum þess. Everton-menn eru einmitt erkifjendur Liverpool. Báðir fengu gult spjald í kjölfarið.

Richarlison var hins vegar ekki lengi að svara. 

„Ég held að hann vilji ná að skora 30 mörk á sínum ferli,“ skrifaði Richarlison undir TikTok-myndskeiði en Elliott hefur skoraði 21 mark síðan hann byrjaði sinn meistaraflokksferil. 

Richarlison.
Richarlison. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert