Liverpool varð á sunnudag Englandsmeistari 2025 í knattspyrnu karla. Það fór vísast ekki fram hjá mörgum.
Ég var svo lánsamur að vera viðstaddur, með skömmum fyrirvara, þegar Liverpool lagði Tottenham 5:1 og tryggði sér titilinn í 20. skipti.
Góðvinur minn hringdi sl. þriðjudagsmorgun og spurði hvort ég hefði áhuga á því að fara. „Tja, já, vægast sagt,“ sagði ég og sló til.
Að reyna að koma því í orð hversu mögnuð upplifun það var að vera á Anfield við þetta tilefni er ekki auðvelt, en ég reyni.
Við í fjögurra manna hópi vorum mættir við leikvanginn tveimur og hálfum tíma fyrir leik og þá var allt þegar stappfullt fyrir utan og gífurleg læti. Mikil sigurvissa var í loftinu á sólríkum degi í Liverpool og því svekkjandi þegar Tottenham tók forystuna snemma leiks.
Á sunnudag small hins vegar allt, á fullkomnum degi sem fær sæti ofarlega yfir bestu upplifanir ævinnar.
Bakvörðinn í heild sinni má sjá í Morgunblaði dagsins.