United að endurheimta lykilmann

Amad Diallo í leik með Manchester United á tímabilinu.
Amad Diallo í leik með Manchester United á tímabilinu. AFP/Paul Ellis

Fílabeinsstrendingurinn Amad Diallo, knattspyrnumaður hjá Manchester United, mun brátt hefja æfingar að nýju og gæti því náð síðustu leikjum tímabilsins.

Amad hefur verið frá eftir að hafa skaddað liðbönd á ökkla fyrir sex vikum og var óttast að kantmaðurinn knái gæti ekki tekið frekari þátt á tímabilinu.

London Evening Standard greinir hins vegar frá því að hann gæti hafið æfingar að nýju í vikunni vegna þess að bataferlið hafi gengið framar vonum. 

Það væru afar góðar fréttir fyrir Man. United en Amad var búinn að skora sex mörk og leggja upp önnur sex í 22 leikjum í öllum keppnum þegar hann meiddist.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert