Evangelos Marinakis, eigandi enska knattspyrnufélagsins Nottingham Forest, hefur afsalað sér sæti í stjórn félagsins til að það standist reglur um að komast í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili.
Forest er óvænt í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti fyrir fjórar síðustu umferðir deildarinnar og það setti eigandann í klemmu en Grikkinn er líka eigandi gríska félagsins Olympiacos, sem og portúgalska félagsins Rio Ave.
Samkvæmt reglum Knattspyrnusambands Evrópu geta tvö félög með sama eiganda ekki tekið þátt í sömu Evrópukeppninni.
Þetta þurfti að komast á hreint fyrir lok dagsins í dag, 30. apríl.
BBC segir að samkvæmt sínum heimildum sé Marinakis þó enn aðaleigandi félagsins en landi hans og meðeigandi hjá Forest, Sokratis Kominakis, hefur tekið stöðu hans í stjórn enska félagsins.
Marinakis er 57 ára gamall og hefur um áratugaskeið verið eigandi skipa og skipafélaga í Grikklandi og víðar. Hann kom inn í knattspyrnuna sem forseti grísku úrvalsdeildarinnar árið 2010 og varaforseti gríska knattpyrnusambandsins um skeið. Hann gerðist aðaleigandi Nottingham Forest árið 2017.