Rauða spjaldið gegn United dregið til baka

Evanilson fékk beint rautt spjald.
Evanilson fékk beint rautt spjald. AFP/Glyn Kirk

Rauða spjaldið sem Brasilíumaðurinn Evanilson, framherji enska knattspyrnuliðsins Bournemouth, fékk gegn Manchester United um síðustu helgi hefur verið dregið til baka. 

Leikar enduðu 1:1 en Evanilson var rekinn af velli eftir að dómarinn Peter Banks var sendur í skjáinn og gaf framherjanum rautt spjald fyrir tæklingu á Noussair Mazraoui. 

Bournemouth áfrýjaði hins vegar dómnum eftir leik og sú áfrýj­un bar ár­ang­ur og aga­nefnd ensku úr­vals­deild­ar­inn­ar viður­kenndi mis­tök.

Hann verður því klár í næsta leik Bournemouth sem er gegn Arsenal á laugardaginn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert