James Maddison, miðjumaður enska knattspyrnufélagsins Tottenham, talaði fallega um stjóra liðsins Ange Postecoglou fyrir fyrri leikinn gegn norska liðinu Bodö/Glimt í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.
Liðin mætast í London annað kvöld og síðan í bænum Bodö í Noregi á fimmtudaginn eftir viku.
Tottenham hefur staðið sig afleitlega í deildinni á tímabilinu en liðið situr í 16. sæti deildarinnar með 37 stig.
Þrátt fyrir það standa leikmenn liðsins við bakið á stjóranum ef marka má orð Maddisons.
„Við styðjum stjórann, 100 prósent. Mér finnst hann vera frábær maður.
Hann er sá fyrsti til að viðurkenna að við höfum átt slæmt tímabil, sérstaklega í deildinni. Við höfum átt gott tímabil í Evrópu en frammistaða okkar í deildinni er óásættanleg, og tökum við sameiginlega ábyrgð á því,“ sagði Maddison á blaðamannafundi.
Fari svo að Tottenham vinni Evrópudeildina þá kæmist liðið beint í Meistaradeildina á næstu leiktíð.