Tímabilið búið hjá Brassanum

Joelinton spilar ekki meira með Newcastle á tímabilinu.
Joelinton spilar ekki meira með Newcastle á tímabilinu. AFP/Andy Buchanan

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Joelinton leikur ekki meira með Newcastle á leiktíðinni vegna meiðsla.

Miðjumaðurinn varð fyrir hnémeiðslum í síðustu viku og enski miðilinn Daily Mail greinir frá því að meiðslin muni halda honum utan vallar út leiktíðina.

Newcastle er í miklum slag um sæti í Meistaradeildinni og er Joelinton lykilmaður hjá liðinu. Er því um mikið áfall fyrir deildabikarmeistarana að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert