Benoný Breki Andrésson kom inn á sem varamaður og skoraði stuttu síðar þegar lið hans Stockport County vann endurkomusigur sigur á Wycombe, 3:1, í lokaumferð ensku C-deildarinnar í knattspyrnu í dag.
Stockport hafnar í þriðja sæti deildarinnar og mætir Leyton Orient í undanúrslitum umspils um eitt laust læti í ensku B-deildinni.
Benoný Breki kom inn á sem varamaður á 62. mínútu þegar heimamenn í Wycombe voru 1:0 yfir og nýbúnir að klúðra vítaspyrnu.
Aðeins átta mínútum síðar var hann búinn að jafna metin. Oliver Norwood og Will Collar bættu svo við mörkum hjá Stockport og góður útisigur niðurstaðan.
Íslendingalið Birmingham City vann útisigur á Cambridge United, 2:1, og bætti eigið stigamet í ensku deildakeppninni.
Birmingham vann C-deildina með yfirburðum með því að vinna sér inn 111 stig. Fyrra met í deildakeppninni átti Reading sem fékk 106 stig í B-deildinni 2005-2006.
Willum Þór Willumsson lék fyrri hálfleikinn fyrir Birmingham en Alfons Sampsted var ekki í leikmannahópnum.
Jón Daði Böðvarsson var þá ekki í leikmannahópi Burton Albion, sem tapaði 3:1 fyrir Charlton Athletic en var búið að tryggja áframhaldandi veru sína í deildinni.
Birmingham og Wrexham fóru beint upp en Stockport, Charlton, Wycombe og Leyton Orient leika í umspilinu um eitt sæti í B-deildinni.
Í D-deildinni lék Jason Daði Svanþórsson allan leikinn með Grimsby sem tapaði 1:0 á heimavelli fyrir Wimbledon í hreinum úrslitaleik um sæti í umspili deildarinnar. Grimsby endaði fyrir vikið í níunda sæti en hefði náð sjötta sæti með sigri.
Doncaster, Port Vale og Bradford City unnu sér sæti í C-deildinni en Walsall, Wimbledon, Notts County og Chesterfield fara í umspil um eitt sæti þar.