Blés í flautu dómarans sem datt (myndskeið)

Jamie Vardy framherji Leicester er ólíkindatól en hann stríddi dómaranum David Webb sem þurfti að fara af velli í fyrsta leik sínum sem dómari í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 

Leicester vann Southampton, 2:0, í Leicester en bæði lið eru fallinn. Jamie Vardy og Jordan Ayew skoruðu mörk Leicester. 

Á 21. mínútu féll dómarinn Webb en hann lenti í höfuðmeiðslum. Vardy tók þá flautu dómarans og blés í hana til að stöðva leikinn. Atvikið vakti mikla lukku á samfélagsmiðlum. 

Atvikið sem og aðrar svipmyndir úr leiknum á sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert