Leicester hafði betur gegn Southampton, 2:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á heimavelli í Leicester í dag.
Þetta var fyrsti sigur Leicester síðan liðið vann Tottenham á útivelli í janúar. Bæði lið eru fallin en Leicester er í 19. sæti með 21 stig og Southampton í 20. með aðeins ellefu.
Jamie Vardy og Jordan Ayew skoruðu mörk Leicester.