Skoraði aftur eitt af mörkum tímabilsins (myndskeið)

Julio Enciso skoraði stórglæsilegt mark þegar Ispwich kom til baka gegn Everton og náði jafntefli, 2:2, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Goodison Park í Liverpool í dag. 

Beto og Dwight McNeil komu Everton í 2:0 en á 41. mínútu leiksins minnkaði Enciso metin með glæsilegu skoti utan teigs, sláin inn. Hann skoraði svipað mark gegn Manchester City vorið 2023. 

George Hirst jafnaði síðan metin fyrir Ipswich á 79. mínútu leiksins, 2:2. 

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert