Arteta: Ætlum að nýta okkur reiðina

Mikel Arteta er knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal.
Mikel Arteta er knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal. AFP/Glyn Kirk

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri karlaliðs Arsenal, segir að lið sitt ætli að nýta sér reiðina eftir tapið fyrir Bournemouth, 2:1, á heimavelli í ensku úrvalsdeildinni í gær. 

Arsenal mætir París SG í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í Parísarborg næsta miðvikudag. París SG vann fyrri leikinn 1:0 og er því verk að vinna fyrir Arsenal. 

„Þetta er ekki það sem við vildum fyrir þennan leik. Þetta tap skapaði mikla reiði, gremju og vonbrigði. 

Við skulum nýta okkur þetta allt á miðvikudaginn, við verðum að gera það,“ sagði Arteta í viðtali eftir leik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert