Alexander Isak bjargaði einu stigi fyrir Newcastle er liðið gerði jafntefli við Brighton, 1:1, á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Kom markið úr víti en Craig Pawson dæmdi þrjú víti í leiknum. Fékk aðeins það síðasta að standa eftir að fyrri tvö voru dregin til baka eftir skoðun í VAR.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.