Chelsea skoraði þrjú gegn Liverpool (myndskeið)

Chelsea lék á alls oddi þegar liðið fékk Liverpool í heimsókn í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta á Stamford Bridge í Lundúnum í dag.

Leiknum lauk með öruggum sigri Chelsea, 3:1, en leikmenn Chelsea stóðu heiðursvörð fyrir leikmenn Liverpool fyrir leikinn þar sem Liverpool tryggði sér Englandsmeistaratitilinn um síðustu helgi.

Enzo Fernández og Cole Palmer skoruðu mörk Chelsea og þá varð Jarrell Quansah fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Virgil van Dijk skoraði eina mark Liverpool í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert