Stjarna Crystal Palace vann milljónir á skákmóti

Eberechi Eze er margt til lista lagt.
Eberechi Eze er margt til lista lagt. AFP/Glyn Kirk

Eberechi Eze, helsta knattspyrnustjarna enska félagsins Crystal Palace, fagnaði sigri á skákmóti á dögunum sem tryggði honum 15 þúsund pund eða um tvær og hálfa milljón íslenskra króna.

Eze vann PogChamps-áhugamannamót Chess.com sem stóð yfir í fjóra daga og var haldið á netinu.

Mótið var fyrir fræga áhrifavalda og íþróttamenn og voru samtals 75 þúsund pund eða um 13 milljónir í verðlaunafé. Eze sigraði þá YouTube-stjörnuna Sapnap í úrslitaviðureigninni. 

Eze er lykilmaður í liði Crystal Palace og hefur verið það síðustu ár. Hann skoraði meðal annars í 3:0-sigri Palace á Aston Villa í undanúrslitum enska bikarsins á Wembley-leikvanginum síðustu helgi.

Þá er hann enskur landsliðsmaður og hefur verið orðaður við stærri lið. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert