Chelsea hafði betur gegn Englandsmeisturum Liverpool, 3:1, í 35. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á Stamford Bridge í London í dag.
Eftir leik er Chelsea enn í fimmta sæti, nú með 63 stig og jafnmörg og Newcastle en Liverpool er á toppnum með 82. Efstu fimm sæti deildarinnar tryggja þátttöku í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.
Enzo Fernándex skoraði fyrsta mark Chelsea strax á þriðju mínútu. Þá fékk hann sendingu frá Pedro Neto og skoraði framhjá Alisson, 1:0.
Annað mark Chelsea-manna var skrautlegt en það kom á 85. mínútu. Þá lék Cole Palmer á Conor Braldey og sendi boltann fyrir. Enginn Chelsea-maður komst í boltann og ætlaði Virgil van Dijk að spyrna honum frá en hann skaut í liðsfélaga sinn Jarrel Quansah og þaðan fór boltinn í netið.
Van Dijk minnkaði hins vegar muninn fyrir Liverpool á 85. mínútu með góðu skallamarki eftir hornspyrnu Alexis Mac Allister, 2:1.
Undir blálokin vann hins vegar Moisés Caicedo vítaspyrnu fyrir Chelsea eftir að Quansah braut á honum. Á punktinn steig Palmer og skoraði, 3:1.
Chelsea heimsækir Newcastle í gríðarlega mikilvægum leik næstu helgi en Liverpool fær Arsenal í heimsókn.