Tvö Lundúnalið í vandræðum (myndskeið)

Wilson Odobert kom Tottenham yfir en Jarrod Bowen jafnaði fyrir West Ham er liðin skildu jöfn, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Hefur West Ham nú spilað átta leiki í röð án þess að vinna og Tottenham aðeins unnið tvo leiki af síðustu sjö í öllum keppnum.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert