Brentford vann Manchester United í sjö marka leik, 4:3, í 35. umferð ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu á heimavelli Brentford í London í dag.
Mason Mount kom United yfir á 14. mínútu en eftir það tóku við fjögur mörk frá Brentford. Fyrsta var sjálfsmark, næstu tvö skoraði Kevin Schade og Yoane Wissa það síðasta, 4:1.
United tókst hins vegar að minnka muninn aðeins undir lokin þökk sé mörkum frá Alejandro Garnacho og Amad Diallo.
Mörkin sjö og aðrar svipmyndir má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.