Murillo bjargaði stigi fyrir Nottingham Forest þegar liðið sótti Crystal Palace heim til Lundúna og gerði jafntefli, 1:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Eberechi Eze hafði komið Palace yfir með marki úr vítaspyrnu sem var dæmd eftir aðkomu VAR þar sem brotið var á Tyrick Mitchell innan vítateigs.
Murillo stýrði svo skoti Neco Williams í netið stuttu síðar.
Eze var næst því að skora sigurmarkið en glæsilegt skot hans fyrir utan vítateig hafnaði í þverslánni.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér að ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.