Eiður Smári: Mátt ekki gleyma hvaða treyju þú spilar í

Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru gestir Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum Sport í gær. Þar ræddu þau 4:3-tap Manchester United fyrir Brentford í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

„Við erum aðeins búin að gefa United frípassa. Þeir hafa fengið alla þessa gagnrýni og við vitum hvað þetta er búið að vera erfitt tímabil. En þegar ég horfði á Brentford komast í 4:1 þá hugsaði ég að þetta gæti orðið 5:1 eða 6:1.

Þó þú sért búinn að gefa deildina aðeins upp á bátinn af því að þú ert með fókusinn annars staðar þá má nú ekki gleyma í hvaða treyju þú ert að spila.

16 töp og það eru ennþá þrír leikir eftir þannig að ég er nokkuð viss um að þeir geti bætt einhvers konar met í sinni sögu. Það hlýtur bara að vera,“ sagði Eiður Smári.

Umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert