Darwin Núnez, framherji Liverpool, fékk fínt færi til að skora í leik liðsins gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Núnez náði hins vegar ekki skoti að marki þar sem Trevoh Chalobah varðist vel.
Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru gestir Harðar Magnússonar í Vellinum á Símanum Sport í gær og þau ræddu leikinn og m.a. færið hjá Núnez.
Þrátt fyrir góða vörn hjá Chalobah vildi Eiður sjá Núnez gera betur í færinu.
Innslagið úr þættinum má sjá hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.