Eiður Smári: Þá á markið að standa

„Mér fannst þetta fara í kviðinn á honum,“ sagði þáttastjórnandinn Hörður Magnússon í Vellinum á Símanum í Sport í gær þegar rætt var um sigurmark Bournemouth gegn Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardag.

VAR skoðaði lengi vel hvort Evanilson hafi handleikið knöttinn þegar hann skoraði en komst að þeirri niðurstöðu að svo hafi ekki verið.

„Ef það er svona erfitt þegar maður er búinn að sjá þetta tvisvar, þrisvar, fjórum sinnum í endursýningu frá öllum vinklum og við erum samt ekki 100 prósent viss þá á markið bara að standa.

Við viljum alltaf frekar sjá fleiri mörk í leik heldur en ekki. Ef þú horfir yfir tímabilið þá jafnar þetta sig alltaf út,“ sagði Eiður Smári Guðjohnsen í þættinum.

Umræður Eiðs Smára, Harðar og Margrétar Láru Viðarsdóttur um Arsenal má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert