Knattspyrnumaðurinn Trent Alexander-Arnold yfirgefur Liverpool eftir yfirstandandi tímabil er samningur hans við félagið rennur út. Hann staðfesti tíðindin í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X.
Alexander-Arnold er uppalinn hjá Liverpool, hefur leikið með liðinu allan ferilinn og verið hjá því í 20 ár. Hann mun að öllum líkindum ganga í raðir Real Madrid á næstu vikum.
„Frá mínum dýpstu hjartarótum vil ég þakka öllum, öllum þjálfurum, knattspyrnustjórum, liðsfélögum, starfsfólki og okkar mögnuðu stuðningsmönnum,“ skrifaði hann m.a.
Yfirlýsinguna og myndband frá bakverðinum má sjá hér fyrir neðan.
After 20 years at Liverpool Football Club, now is the time for me to confirm that I will be leaving at the end of the season.
— Trent Alexander-Arnold (@TrentAA) May 5, 2025
This is easily the hardest decision I’ve ever made in my life.
I know many of you have wondered why or been frustrated that I haven’t spoken about this… pic.twitter.com/emAw5RvXq0