Möguleikar Nottingham Forest á sæti í Meistaradeild Evrópu dvínuðu í kvöld þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Crystal Palace í síðasta leik 35. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í London í kvöld.
Forest er áfram í sjötta sæti þegar þrjár umferðir eru eftir með 61 stig. Chelsea og Newcastle eru með 63 stig og Manchester City 64 í þremur sætum þar fyrir ofan, sem öll eru Meistaradeildarsæti. Forest er líka talsvert á eftir þessum liðum í markatölu.
Palace er áfram í 12. sætinu með 46 stig.
Palace náði forystunni á 60. mínútu þegar Eberechi Eze skoraði úr vítaspyrnu, 1:0.
Það tók Forest aðeins fjórar mínútur að jafna metin en Murillo skoraði á 64. mínútu eftir sendingu frá Neco Williams.