Cole Palmer skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í fjóra mánuði er hann gerði þriðja mark Chelsea í 3:1-heimasigri á Liverpool í gær.
Palmer hefur mátt þola mikla gagnrýni vegna markaleysisins og ekki síst á samfélagsmiðlum en sóknarmaðurinn svaraði fyrir sig í viðtali við Sky eftir leik.
„Það getur gerst að skora ekki í einhvern tíma. Það gerir mig enn staðráðnari í að gera vel fyrir liðið,“ sagði Palmer, áður en hann skaut fast á þá sem gagnrýna hann á samfélagsmiðlum.
„Samfélagsmiðlar eru fullir af vitleysingum. Ég pæli ekkert í þeim. Ég er ánægður með að skora í dag og ég vil halda áfram að bæta mig,“ sagði hann.