Stýrir Leeds í úrvalsdeildinni

Daniel Farke.
Daniel Farke. AFP/Oliver Behrendt

Daniel Farke verður áfram knattspyrnustjóri Leeds United eftir að hafa stýrt liðinu til sigurs í ensku B-deildinni, sem þýðir að liðið leikur í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Uppi voru getgátur um að Farke yrði látinn taka pokann sinn þrátt fyrir að hafa komið Leeds upp í ensku úrvalsdeildina að nýju en Paraag Marathe, stjórnarformaður félagsins, segir svo ekki vera.

„Ég hef bundið enda á þennan orðróm. Hann er minn maður,“ sagði Marather í samtali við breska ríkisútvarpið.

Farke á tvö ár eftir af samningi sínum við Leeds og fær að freista þess að halda liðinu í deild þeirra bestu á næsta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert